(354) 562 8565 ra@akademia.is
  1. Forsíða
  2.  » 
  3. Fréttir
  4.  » Einkavæðing, markaðsvæðing, heimsvæðing 13.maí

Einkavæðing, markaðsvæðing, heimsvæðing 13.maí

by | 12. maí, 2010 | Fréttir

Attac á Íslandi og ReykjavíkurAkademían kynna:
Fyrirlestraröð um “Einkavæðing, markaðsvæðing, heimsvæðing”

Í maí og júní mun Attac á Íslandi gangast fyrir röð fyrirlestra. Þeir munu fjalla um einkavæðingu, markaðsvæðingu og hnattvæðingu undanfarinna áratuga.

Fyrsti fyrirlesturinn verður haldinn í ReykjavíkurAkademíunni, Hringbraut 121, frá kl. 20:00 – 21:30 fimmtudaginn 13. maí í fyrirlestrarsal á 4. hæð.

Anna Karlsdóttir landfræðingur við Háskóla Íslands flytur fyrirlestur undir heitinu

Fyrirtækjaræði og lögleysur félagslegrar ábyrgðar í samtímanum.

Fyrirlesarar í þessari röð auk Önnu Karlsdóttir verða Guðmundur Jónsson prófessor í sagnfræði, Magnús Sveinn Helgason hagsögufræðingur og Viðar Þorsteinsson heimspekingur.

27. maí: Guðmundur Jónsson prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands flytur fyrirlestur undir heitinu “Hnattvæðingin og efnahagslegt öryggi Íslendinga.” Í fyrirlestrinum ætla Guðmundur að fjalla um hugtakið efnahagslegt öryggi og skoða í sögulegu samhengi hvaða þættir hafa helst stuðlað að áhættu og óöryggi í íslensku efnahagslífi.

10. júní: Magnús Sveinn Helgason hagsögufræðingur heldur fyrirlestur, efni nánar auglýst síðar.

24. júní: Viðar Þorsteinsson heimspekingur flytur fyrirlestur undir heitinu „Nýfrjálshyggjan er ekki til.”