(354) 562 8565 ra@akademia.is
  1. Forsíða
  2.  » 
  3. Fréttir
  4.  » Er hægt að efna kosningaloforð til aldraðra? Haukur Arnþórsson í Öndvegi 23. nóv

Er hægt að efna kosningaloforð til aldraðra? Haukur Arnþórsson í Öndvegi 23. nóv

by | 15. nóv, 2017 | Fréttir, Fyrirlestrarröð RA, Viðburðir RA

haukur arnthorsson
Í Öndvegiskaffi RA næstkomandi fimmtudag mun dr. Haukur Arnþórsson kynna niðurstöður rannsóknar á kjörum aldraða á árunum 2007-2016 og hvaða breytingar voru gerðar 2017. Fram kemur hvar staðan er góð og hvar hún er erfið. Kynnt eru meðaltöl, bæði fyrir aldraða í heild og fyrir ákveðna tekjuhópa og eignahópa og meðal annars fjallað um ólíkan tekjuuppruna. Áhersla er lögð á að skoða eftirlaun (e. pension), sem eru greiðslur almannatrygginga og lífeyrissjóða. Þá verður farið yfir hvað raunhæft er að gera ef stjórnmálalegur vilji er fyrir aðgerðum í þágu aldraðra. 

Rannsóknin var unnin að beiðni Félags eldri borgara í Reykjavík.

Samkvæmt venju verður fundurinn haldinn í fundarsal ReykjavíkurAkademíunnar í Þórunnartúni 2, 4. hæð (þar sem Bókasafn Dagsbrúnar er til húsa).

Allir velkomnir. Léttar veitingar á boðstólum.