1. Forsíða
  2.  » 
  3. Fréttir
  4.  » Forsenda nýsköpunar: Áhrif vísinda á íslenskt samfélag

Forsenda nýsköpunar: Áhrif vísinda á íslenskt samfélag

by | 12. May, 2024 | Fréttir

Vegna niðurskurðar til vísindasjóða og aukinnar verðbólgu hafa framlög til vísindarannsókna lækkað umtalsvert á síðustu árum. Vísindasamfélagið vill bregðast við með því að benda á verðmæti vísinda fyrir samfélagið, óháð fræðasviði.
Að þessu málþingi standa saman Háskóli Íslands og Háskólinn í Reykjavík í samvinnu við ReykjavíkurAkademíuna og FEDON, félag doktorsefna og nýrannsakenda við HÍ.
Málþingið fer fram í stofu M208 í HR, fimmtudaginn 16. maí kl. 14.00-15.30.

Fundarstjóri: Magnús Karl Magnússon, prófessor við HÍ.

 

Dagskrá:

Hverju skila lífvísindin til samfélagsins? Erna Magnúsdóttir, dósent HÍ

Fjármögnun grunnrannsókna: Næring fyrir nýsköpun. Sigurður Ingi Erlingsson, prófessor HR

Áhrif samningsleysis á unga rannsakendur: Jafnrétti og samfélagsleg gæði í húfi.  Svava Dögg Jónsdóttir doktorsnemi HÍ/formaður FEDON

Frumkvöðlar á sviði fræða – áhugadrifnar rannsóknir og samfélagsleg nýsköpun.  Anna Þorbjörg Þorgrímsdóttir, ReykjavíkurAkademíunni

Verðmætasköpun, samfélagsleg áhrif og gagnrýnin hug- og félagsvísindi.   Þorgerður Einardsóttir, prófessor HÍ

Viðburðurinn á Facebook