(354) 562 8565 ra@akademia.is
  1. Forsíða
  2.  » 
  3. Fréttir
  4.  » Fréttatilkynning um stofnun Félags doktora í tónlist (FDTÍ)

Fréttatilkynning um stofnun Félags doktora í tónlist (FDTÍ)

by | 5. jan, 2015 | Fréttir

Félag doktora í tónlist á Íslandi var stofnað 5. október sl. Markmið félagsins er að efla tónlistarrannsóknir og tónlistarmenntun á háskólastigi, styrkja stöðu þeirra sem lokið hafa doktorsnámi í tónlist og nýta þann mannauð sem felst í þessari menntun. Á stefnuskrá FDTÍ er t.a.m. undirbúningur stofnunar doktorsnáms í tónlist og samstarf við menningar- og menntastofnanir innanlands og erlendis. 
 
Félagið mun ennfremur álykta um mál sem snúa að tónlistarmenntun og rannsóknum á háskólastigi og standa vörð um faglega hagsmuni félagsmanna. Stjórn og varastjórn FDTÍ skipa: Dr. Nína Margrét Grímsdóttir, píanóleikari og formaður; Dr. Kjartan Ólafsson, tónskáld; Dr. Sigurlaug Regína Friðþjófsdóttir, tónlistarfræðingur; Dr. Ragnheiður Ólafsdóttir, tónlistarfræðingur; Dr. Berglind María Tómasdóttir, flautuleikari. 
 
FDTÍ býður tónlistarfólk með doktorspróf búsett á Íslandi og erlendis velkomið í félagið. Fyrirspurnir sendist á nina@ninamargret.com