(354) 562 8565 ra@akademia.is
  1. Forsíða
  2.  » 
  3. Viðburðir RA
  4.  » 
  5. Dagsbrúnarfyrirlestrar
  6.  » Fullgildir Borgarar?

Fullgildir Borgarar?

by | 4. nóv, 2010 | Dagsbrúnarfyrirlestrar, Fréttir, Viðburðir RA

Dagsbrúnarfyrirlestur, í ReykjavíkurAkademíunni fimmtudaginn 11. nóvember kl. 12:05, 4.hæð.

 

_dsc4341_ragnheidurkristjansdottir_0702685749_net.jpg

Um nýtt fólk í stjórnmálaumræðunni Fram að Lýðveldisstofnun

Ragnheiður Kristjánsdóttir

Eitt helsta verkefni alþjóðlegrar verkalýðshreyfingar var að berjast fyrir því að skjólstæðingar hennar teldust fullgildir borgarar. Í fyrirlestrinum verða færð rök fyrir því að á Íslandi hafi þessi þáttur verkalýðsbaráttunnar ekki síst falist í tilraunum til að endurmóta íslenska þjóðernisstefnu. Sýnt verður fram á að verkalýðshreyfingin hafi allt frá upphafi ráðist gegn þeim þáttum hennar sem samrýmdust illa sósíalískri stjórnmálaorðræðu, reynt að endursegja þjóðarsöguna, skilgreina upp á nýtt og á sínum forsendum grunnþætti íslenskrar þjóðernissjálfsmyndar. Jafnframt verða borin saman áhrif þjóðernisstefnu á stjórnmálaarma verkalýðshreyfingarinnar, Alþýðuflokkinn annars vegar og Kommúnistaflokkinn (og síðar Sósíalistaflokkinn) hins vegar.

Ragnheiður Kristjánsdóttir er aðjunkt í sagnfræði við Háskóla Íslands. Fyrirlesturinn byggir á bók hennar og doktorsritgerð, Nýtt fólk. Þjóðerni og íslensk verkalýðsstjórnmál 1901–1944.