1. Forsíða
  2.  » 
  3. Fréttir
  4.  » GÓUGLEÐI – FYRIRLESTUR OG FJÖRUVERÐLAUN

GÓUGLEÐI – FYRIRLESTUR OG FJÖRUVERÐLAUN

by | 10. Mar, 2010 | Fréttir

 

kate_mosse.jpgSunnudaginn 21. mars kl. 11.00 heldur breski metsöluhöfundurinn Kate Mosse fyrirlestur um tilurð og sögu Orange bókmenntaverðlaunanna sem einungis eru veitt konum.

 

Mosse var helsta hvatamanneskja þessara virtu bókmenntaverðlauna og er nú heiðursfélagi samtakanna sem veita þau.

 

Fyrirlesturinn fer fram á Hótel Sögu (Radisson Blu), í fundasal á 1. hæð.

 

Um kl. 12.00 verða “Fjöruverðlaunin – bókmenntaverðlaun kvenna” síðan veitt í fjórða sinn, í þremur flokkum: Fagurbókmenntir, fræðirit, barna- og unglingabækur.

 

Að lokum verður boðið upp á léttar veitingar.

 

Það er Góuhópurinn (grasrótarhópur kvenna innan Rithöfundasambands Íslands og Hagþenkis) sem stendur að Góugleðinni, fjórða árið í röð.

 

Allt áhugafólk um bókmenntir er velkomið!