(354) 562 8565 ra@akademia.is
  1. Forsíða
  2.  » 
  3. Fréttir
  4.  » H21 VALD ÁSTRÍÐNA ÁSTRÍÐUR VALDS 2014

H21 VALD ÁSTRÍÐNA ÁSTRÍÐUR VALDS 2014

by | 18. ágú, 2015 | Fréttir, H-21, Upptökur, Viðburðir RA

HUGMYNDIR 21. ALDARINNAR
VALD ÁSTRÍÐNA

ÁSTRÍÐUR VALDS

FRÆÐI / STÝRING – ÞEKKINGARGRUNNUR SAMTÍMANS

Upptökur af málþingi ReykjavíkurAkademíunnar sem haldið var

laugardaginn 5. apríl kl. 11:00 – 15:00 í sal ReykjavíkurAkademíunnar

í JL-húsinu Hringbraut 121

Movie icons 01 512 Smellið á nöfn fyrirlesara til að nálgast upptökur af fyrirlestrum og Movie icons 01 512

“Umræður” til að nálgast upptökur af umræðum. 

Guðrún Ingólfsdóttir: Ástríðufull fílólógía. Guðrún er doktor í íslenskum bókmenntum frá Háskóla Íslands. Hún er sjálfstætt starfandi fræðimaður með aðstöðu á Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.

Benedikt Hjartarson: „Og hvaða erindi á þetta svo við okkar samtíma?“ Um nektarmenningu, dulspeki, esperanto, framúrstefnu, fasisma, alpaklifur og rafmagnsguðfræði. Benedikt er með doktorspróf frá hugvísindasviði Rijksuniversiteit í Groningen og er lektor í almennri bókmenntafræði við Háskóla Íslands.

Lára Magnúsardóttir: Ástríðustjórnun – um rannsókn á opinberu valdi og einkalífi . Lára er er akademískur sérfræðingur hjá Rannsóknasetri Háskóla Íslands á Norðurlandi vestra og forstöðumaður þeirrar stofnunar.

Björn Þorsteinsson: Brennið þið vitar. Tittlingaspælingar á tuttugustu og fyrstu öld. Björn er doktor í heimspeki frá Université Paris 8. Hann starfar við Heimspekistofnun Háskóla Íslands.


Umræður.
 

 

Umræðustjóri var dr. Þorgerður Þorvaldsdóttir