(354) 562 8565 ra@akademia.is
  1. Forsíða
  2.  » 
  3. Fréttir
  4.  » Hagstætt skrifstofuhúsnæði í boði

Hagstætt skrifstofuhúsnæði í boði

by | 20. jan, 2017 | Fréttir

skulatumnn ekkideli

Starfar þú sjálfstætt á vettvangi menningar-, hug- og félagsvísinda og ert í leit að skrifstofuhúsnæði á hagstæðu verði og góðum félagsskap?
Ef svo er, gæti ReykjavíkurAkademían verið svarið fyrir þig. 

 

 ReykjavíkurAkademían ses (RA ses) er sjálfseignarstofnun og er lifandi vettvangur þeirra sem starfa í menningar-, hug- og félagsvísindum á Íslandi. Stofnunin er í senn vinnustaður og vettvangur umræðu og viðburða á sviði menningar- og fræða. Skrifstofuhúsnæði RA er hentugt, hagstætt og er ætlað félagsmönnum RA. 

 Með því að greiða félagsgjöld (2.700kr á ári) og styrkja félagið fá félagar:

  • Aðild að Forum, póstlista ReykjavíkurAkademíunnar, þar sem viðburðir á vegum akademíunnar eru auglýstir.
  • Kost á að vera með eigin upplýsingasvæði á félagaskrá heimasíðu akademíunnar.
  • Akademíunetfang gegn vægu gjaldi.
  • Kost á að leigja skrifstofu, gegn sanngjörnu gjaldi.
  • Kost á að leigja sal ReykjavíkurAkademíunnar, gegn sanngjörnu gjaldi.
  • Kosningarétt á aðalfundi.

Smelltu hér til að gerast félagi í ReykjavíkurAkademíunni
Smelltu hér til að sækja um skrifstofu hjá ReykjavíkurAkademíunni

 Ath. gerast þarf félagi í ReykjavíkurAkademíunni til þess að geta sótt um skrifstofu 

Senda fyrirspurn á ra@akademia.is