(354) 562 8565 ra@akademia.is
  1. Forsíða
  2.  » 
  3. Fréttir
  4.  » RA fékk heimsókn frá Atalaya – nýsköpunarsetri

RA fékk heimsókn frá Atalaya – nýsköpunarsetri

by | 30. jan, 2017 | Fréttir

Atalaya fra bjorgu

Á dögunum fékk RA skemmtilega og gefandi heimsókn frá Atalaya – pólsku menntasetri – sem aðstoðar uppeldisstofnanir, skóla og fyrirtæki við innleiðingu framsækinna kennsluaðferða og starfshátta. 

Hugmyndafræði Atalaya er sú að persónulegur þroski einstaklinga sé helsta forsenda nýsköpunar og framfara, hvort sem um ræðir í einkalífinu eða annars staðar.

Heimsóknin var á vegum Bjargar Árnadóttur – framkvæmdastjóra Stílvopnsins ehf. – en mikið samstarf er á milli hennar og Atalaya hugsjónafólksins. Endilega kynnið ykkur starfsemina nánar hér.