(354) 562 8565 ra@akademia.is
  1. Forsíða
  2.  » 
  3. Fréttir
  4.  » Ímynd Íslands eftir hrun, hefur umræðan eitthvað breyst

Ímynd Íslands eftir hrun, hefur umræðan eitthvað breyst

by | 5. nóv, 2011 | Fréttir

Málþing í Norrænahúsinu þriðjudaginn 15. nóvember 2011, kl. 15-17

imagesofthenorth.jpg

 

Málþingið er haldið í tilefni af því að bókin Iceland and Images of the North er komin út
í útgáfu Reykjavíkur Akademíunnar og Presses de l’Université du Québec. Ritstjóri er
Sumarliði R. Ísleifsson í samstarfi við Daníel Chartier. Í bókinni má finna 21 fræðilega grein
um Ísland og ímyndir Norðursins fyrr og nú eftir jafn marga höfunda. Á málþinginu verður
umræðunni um ímyndir Íslands haldið áfram og velt fyrir sér hvort hið margfræga Hrun hafi
haft einhver áhrif þar á.


Kynning og opnunarerindi:
Sumarliði Ísleifsson verkefnastjóri INOR hópsins og ritstjóri bókarinnar og
Kristinn Schram forstöðumaður Þjóðfræðistofu á Ströndum

Þátttakendur í pallborði:
Ólöf Ýrr Atladóttir ferðamálastjóri,
Jón Karl Helgason dósent við Háskóla Íslands,
Tinna Grétarsdóttir mannfræðingur
Inga Hlín Pálsdóttir forstöðumaður markaðssókn, Íslandsstofu.


Umræðustjóri Viðar Hreinsson stjórnarformaður RA.

Málþingið er haldið á vegum Inor hópsins (inor.is) í samstarfi við Reykjavíkur Akademíuna

Hægt er að kaupa bókina á staðnum að málþingi loknu.


Dagskráin er eftirfarandi:

15:00 – 15:15 Sumarliði Ísleifsson kynnir bókina og hugmyndafræði hennar

15:10 – 15:30 Kristinn Schram fjallar um áhrif ímynda á menningarpólitík, þverþjóðleg samskipti og hversdagslíf Íslendinga – ekki síst á tímum útrásarinnar svokölluðu.

15: 30 – 15:50 Innlegg frá þátttakendum í pallborði.inor_stamp_s.gif

15:50 – 16:30 Pallborðsumræður – umræðustjóri Viðar Hreinsson Stjórnarformaður RA.

16:30 – 17:00 Hressing og óformlegt spjall