(354) 562 8565 ra@akademia.is
  1. Forsíða
  2.  » 
  3. Fréttir
  4.  » Kollkeyrslan mikla – Ábyrgð stjórnenda og tær snilld

Kollkeyrslan mikla – Ábyrgð stjórnenda og tær snilld

by | 1. des, 2008 | Fréttir

24.10.2008

Fundur í ReykjavíkurAkademíunni Hringbraut 121, 4. hæð n.k. mánudagskvöld kl. 20

Innistæðutryggingar!

Brot á gildandi EES samningum!

Ábyrgð á Icesave-reikningum!

Sérhagsmunir á kostnað almannahagsmuna!

Traust annarra þjóða á íslenskri stjórnsýslu!

Björn Friðfinnsson lögfræðingur og fyrrv. framkvæmdastjóri ESA í Brüssel og Þór Saari hagfræðingur og ráðgjafi hjá OECD munu halda stutt erindi um lagalegar skyldur íslenska ríkisins og ríkissjóðs vegna Icesave-reikninga á fundi í ReykjavíkurAkademíunni á mánudagskvöldið kl. 20.00.

 

Björn mun reifa þetta út frá samningnum um hið evrópska efnahagssvæði sem tók gildi í ársbyrjun 1994. Hann mun sérstaklega fjalla um reglur um innstæðutryggingar (Tilskipun Evrópuþingsins 94/19/EC) og lög nr 98/1999 um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta, hlutverk tryggingasjóðs og ábyrgð stjórnenda bankastofnana. Þá mun Björn einnig velta fyrir sér hvort einhverjar aðgerðir ríkistjórnarinnar í málinu geti túlkast sem brot á reglum EES-samningsins um bann við  mismunun á grundvelli þjóðernis.

 

Í erindi sínu fjallar Þór um þá umgjörð sem hér var sett um fjármálamarkaði og hvort þar hafi sérhagsmunir eða almannahagsmunir verið látnir ráða ferðinni, einkum hvað varðar mönnun og starfshætti stjórnsýslunnar. Einnig ræðir hann um stöðu stjórnsýslunnar hér á landi og viðhorf annarra þjóða og álit á henni, hvort og þá hversu mikils trausts íslensk stjórnsýsla nýtur meðal nágrannaþjóða.