(354) 562 8565 ra@akademia.is
  1. Forsíða
  2.  » 
  3. Fréttir
  4.  » Ljáðu þeim eyra

Ljáðu þeim eyra

by | 1. des, 2008 | Fréttir, Fyrirlestrarröð RA, Viðburðir RA

12.11.2008

Fimmtudagskvöldið 13. nóvember kl. 20 hefst samræðustundin Ljáðu þeim eyra.

Kvöldið hefst með spjalli Þuríðar Hjálmtýsdóttur sálfræðings í ReykjavíkurAkademíunni og síðan kynna tveir heimspekingar bækur sínar:

Gunnar Hersveinn kynnir bókina Orðspor
Vilhjálmur Árnason kynnir bók sína Farsælt líf – réttlátt samfélag  
Samræðustjóri verður Clarence E. Glad guðfræðingur, stjórnarformaður RA.

Kaffihúsið Súfistinn á annarri hæð í Iðuhúsinu Lækjargötu 2 A í Reykjavík og ReykjavíkurAkademían hafa tekið upp samstarf með það fyrir augum að skapa notalegan samræðuvettvang í hringiðu atburðanna, þar sem samræður og tónlist fléttast við bókaflóðið.

Markmiðið með þessu samstarfi er að bæta samræðu- og kaffihúsamenningu og stefna saman ólíkum sjónarhornum.

Á hverju fimmtudagskvöldi fram að jólum verður samræðusamkoma undir heitinu Ljáðu þeim eyra klukkan 20 í Súfistanum. Þar munu  tveir höfundar lesa úr bókum sínum og einn framsögumaður frá ReykjavíkurAkademíunni spjalla um þema sem tengist bókunum út frá sínum sjónarhóli. Tónlist verður í umsjá Hjörleifs Valssonar fiðluleikara. Síðan verða almennar samræður