(354) 562 8565 ra@akademia.is
  1. Forsíða
  2.  » 
  3. Fréttir
  4.  » Málþing BHM um stöðu sjálfstætt starfandi á vinnumarkaði

Málþing BHM um stöðu sjálfstætt starfandi á vinnumarkaði

by | 25. jan, 2020 | Fréttir

ReykjavíkurAkademían vekur athygli á málþingi BHM um stöðu sjálfstætt starfandi háskólamanna:

Málþing BHM um stöðu sjálfstætt starfandi háskólafólks

NÚ MÁ NÁLGAST UPPTÖKU AF MÁLÞINGINU MÁ NÁLGAST Á VEF BHM

BHM efnir til málþings um stöðu sjálfstætt starfandi háskólafólks fimmtudaginn 30. janúar nk. á Grand hótel Reykjavík. Yfirskrift málþingsins er „Lífið í harkinu – sjálfstætt starfandi háskólafólk í breyttum heimi“. Það er opið öllum sem áhuga hafa, án endurgjalds og meðan húsrúm leyfir, en skrá þarf þátttöku fyrirfram á vef BHM (smellið hér).

Í Evrópu og víðar færist í vöxt að háskólamenntað fólk sé sjálfstætt starfandi eða sé bæði í föstum störfum og vinni sem verktakar. Þróunin helst í hendur við breytingar á vinnumarkaði sem kenndar hafa verið við harkhagkerfið (e. gig economy). Í stuttu máli felast þessar breytingar í því að fyrirtæki og stofnanir velja fremur að útvista einstökum verkefnum en ráða fasta starfsmenn til að sinna þeim. Ný tækni hefur auðveldað útvistun en hún fer í auknum mæli fram gegnum svokallaða netvanga (e. digital platforms) sem eru vefsíður sem tengja saman kaupendur og seljendur þjónustu (sjá nánar hér).

Víðast hvar er ráðningarsamband þó forsenda þess að fólk fái notið vinnumarkaðstengdra réttinda sem ýmist eru bundin í lögum eða kjarasamningum. Þessi réttindi ná yfirleitt ekki nema að mjög takmörkuðu leyti til fólks sem er sjálfstætt starfandi. Í nágrannalöndunum hafa stéttarfélög lýst áhyggjum af stöðu fólks sem vinnur í harkhagkerfinu og beitt sér fyrir bættum réttindum þess.

En hver er staðan hér á landi?
Fer sjálfstætt starfandi háskólafólki fjölgandi eða fækkandi?
Hvaða breytingar þarf að gera á lögum og reglum til að bæta stöðu þessa hóps?
Hvernig geta stéttarfélög háskólafólks bætt þjónustu sína við sjálfstætt starfandi félagsmenn?

Þetta eru meðal spurninga sem ræddar verða á málþingi BHM um stöðu sjálfstætt starfandi háskólafólks fimmtudaginn 30. janúar nk. á Grand hótel Reykjavík (Háteigi). Yfirskrift málþingsins er „Lífið í harkinu – sjálfstætt starfandi háskólafólk í breyttum heimi“ og þar munu bæði innlendir sérfræðingar og einn erlendur sérfræðingur ræða stöðuna og spá í framtíðina.

Dagskrá

13:00 Setning
Þórunn Sveinbjarnardóttir, formaður BHM

13:10 Vinnumarkaður framtíðarinnar – hvaða breytingar eru framundan?
Katrín Ólafsdóttir, lektor við HR

13:40 How can unions support and represent the self employed?
Kirstine Baloti, sérfræðingur HK í Danmörku

14:15 Kaffihlé

14:40 Lagaumhverfið – er breytinga þörf?
Andri Valur Ívarsson, lögmaður BHM

15:10 Pallborðsumræður
Þátttakendur: Katrín Ólafsdóttir, lektor við HR; Andri Valur Ívarsson, lögmaður BHM; og Bjarni A. Lárusson, lögfræðingur hjá ríkisskattstjóra.

15:50 Samantekt fundarstjóra

16:00 Málþingi slitið

Fundarstjóri er Gunnlaugur Már Briem, varaformaður Félags sjúkraþjálfara.

Málþingið er opið öllum sem áhuga hafa, án endurgjalds og meðan húsrúm leyfir, en skrá þarf þátttöku fyrirfram á vef BHM.