(354) 562 8565 ra@akademia.is
  1. Forsíða
  2.  » 
  3. Fréttir
  4.  » MEDART ÞJÁLFUN

MEDART ÞJÁLFUN

by | 23. des, 2019 | Fréttir

Nú í desember 2018 sóttu tveir fulltrúar ReykjavíkurAkademíunnar, Hrund Ólafsdóttir og Björg Árnadóttir, vikulanga þjálfunarsmiðju á eyjunni Lanzarote, Spáni. Smiðjan snerist um aðferðir sem þróaðar höfðu verið í Erasmus+ verkefninu Medart (2015-2017). 

Medart var sjö þjóða samstarfsverkefni með þátttakendum frá Spáni, Slóvíku, Slóveníu, Ungverjalandi, Póllandi, Hollandi og Bretlandi. Markmiðið var að safna saman leikrænum  aðferðum sem notað má í  skapandi og valdeflandi vinnu með jaðarsettum hópum. Niðurstöður birtust í  bókinni Medart – Methods of Education for Disadvantaged Adults Rooten in Theatre.

Markmið þjálfunarsmiðjunnar á Lanzarote var að auka aðgengi að aðferðunum með því að kenna þær fleiri Evrópubúum. Stjórnendur og þjálfarar smiðjunnar voru frá Divadlo bez domova í Slóvakíu og Associacion Acunagua á Lanzarote og höfðu tekið þátt í ofangreindu Erasmus+ verkefni.

Smiðjuna á Lanzarote sóttu auk Íslendinga, Spánverja og Slóvaka þátttakendur frá Portúgal, Ítaliu og Eistlandi. Auk hefðbundinnar kennslu gafst hópnum tækifæri til að taka átt í skapandi starfi í fangelsi á eyjunni.

Medart þjálfun

Hrund Ólafsdóttir og Björg Árnadóttir njóta lífsins á Lanzarote í félagskap slóvakísku sjúkrahússtrúðanna Ivönu Kidaderová og Markétu Dulavová.