(354) 562 8565 ra@akademia.is
  1. Forsíða
  2.  » 
  3. Viðburðir RA
  4.  » 
  5. Aðrir viðburðir
  6.  » Námsheimsókn Slóvaka um fjölmenningu á Íslandi

Námsheimsókn Slóvaka um fjölmenningu á Íslandi

by | 27. mar, 2017 | Aðrir viðburðir, Fréttir, Viðburðir RA

Bjorg27marsDagana 20.-24. mars komu sjö Slóvakar í námsheimsókn til Íslands en ReykjavíkurAkademían skipulagði ferðina sem styrkt var af Uppbyggingarsjóði EES og er hluti af frekara samstarfi Bjargar Árnadóttur hjá Stílvopninu ehf. við félagasamtök og góðgerðarfélag í Slóvakíu. 

Slóvakarnir sjö veita forstöðu eða sitja í stjórnum félaga sem flest vinna á óhefðbundinn hátt við að efla jaðarsetta hópa. Auk Slóvakanna er í hópnum sænskur blaðamaður og stjórnarmaður í Barnaheillum. Hópurinn kynnti sér málefni innflytjenda, hælisleitenda og flóttamanna en ekki síður orðræðuna hérlendis í málaflokki fjölmenningar.