(354) 562 8565 ra@akademia.is
  1. Forsíða
  2.  » 
  3. Fréttir
  4.  » Ný fræðigrein eftir dr. Unni Óttarsdóttur

Ný fræðigrein eftir dr. Unni Óttarsdóttur

by | 18. feb, 2020 | Fréttir

Nýlega birtist í tímaritinu Art Therapy OnLine (ATOL) vísindagrein eftir dr. Unni Óttarsdóttur sem fjallar um fyrstu skipulögðu rannsóknina á teiknun og langtímaminni.  Í greininni ,,Unnið úr tilfinningum og námsefni lagt á minnið með minnisteikningu  er gerð grein fyrir megindlegri og eigindlegri rannsókn á minnisteikning sem gerð var árið 2000. Niðurstöður megindlegu rannsóknarinnar sýndu að teikning er áhrifarík til að leggja á minnið. Níu vikum eftir að börnin lögðu upphaflega á minnið rifjuðu
þau upp að jafnaði fimm sinnum fleiri orð sem þau höfðu teiknað en þau sem þau höfðu skrifað. Eigindleg tilviksrannsóknin sem fjallað er um, sýndir hvernig bóknám er fellt inn í listmeðferð innan skóla. Niðurstöður eigindlegu rannsóknarinnar benda til þess að minnisteikning geti hjálpað börnum að vinna úr tilfinningum sínum tengdum erfiðri reynslu. Rannsóknin sýnir að teikning stuðlar að vellíðan, minni og bóknámnámi innan ramma
listmeðferðar- og kennslufræði.

Nánari upplýsingar um fræðakonuna Unni Óttarsdóttur.

Ottarsdottir, U. 2019 Unnið úr tilfinningum og námsefni lagt á minnið með minnisteikningu. Íslensk þýðing greinarinnar (2018) Processing Emotions and Memorising Coursework Through Memory Drawing. ATOL: Art Therapy OnLine 9 (1). ATOL: Art Therapy OnLine, 10(1).
Tags: Drawing, memory, art therapy, well-being, coursework learning, research.