(354) 562 8565 ra@akademia.is
  1. Forsíða
  2.  » 
  3. Fréttir
  4.  » Nýr fræðimaður, Sveinn Máni Jóhannesson

Nýr fræðimaður, Sveinn Máni Jóhannesson

by | 1. okt, 2020 | Fréttir

Sveinn Máni Jóhannesson

Dr. Sveinn Máni Jóhannesson hefur hafið störf í ReykjavíkurAkademíunni. Sveinn sem gegnir Fennell nýdoktorstöðu í sagnfræði við Edinborgar-háskóla lauk doktorsprófi frá sagnfræðideild Cambridge-háskóla árið 2018. Rannsóknir Sveins lúta að stjórnmála- og hugmyndasögu Bandaríkjanna á nítjándu öld, og þá sérstaklega tengslum ríkisþróunar við vísindi og tækni auk beitingu neyðarvalda á krísutímum. Rannsóknir hans hafa birts í Journal of American History. Í lok árs 2020 kemur út bók í ritstjórn hans og Vals Ingimundarsonar um popúlisma og neyðarstjórnmál hjá Routledge. Þá hefur Sveinn skrifað um íslenska hugmyndasögu á nítjándu öld í Sögu.