1. Forsíða
  2.  » 
  3. Fréttir
  4.  » Nýtt Ísland – landshorna á milli

Nýtt Ísland – landshorna á milli

by | 24. Apr, 2009 | Fréttir

Málþing á Vopnafirði

1. maí verður haldið sameiginlegt málþing Kaupvangs, menningar- og fræðaseturs á Vopnafirði og ReykjavíkurAkademíunnar. Fræðimenn RA og heimamenn halda þar fyrirlestra. Málþingið er öllum opið.

Um allt land er vaxandi áhugi á fræðum og menningu. Byggðarlög eru að vakna til vitundar um þau verðmæti sem leynast í eigin ranni og akademískir fræðimenn sýna þeim vaxandi áhuga.

ReykjavíkurAkademían hefur unnið markvisst að því undanfarin ár að efla fræðastarf um land allt. Málþingið er liður í þeirri viðleitni og því er ætlað að auka samskipti landsbyggðar og höfuðborgarsvæðisins – koma á samræðum þar sem menn skiptast á þekkingu og viðhorfum. Slík tengsl efla þann gagnkvæma skilning sem getur orðið lykillinn að því að byggja upp nýtt Ísland.

Styrktaraðilar: Iðnaðarráðuneytið, Vaxtarsamningur Auasturlands, Vopnafjarðarhreppur, Kvenfélagið Lindin, Rafmagnsverkstæði Árna Magnússonar, Mælifell ehf., Kauptún, Hotel Tangi, Bílar og vélar ehf., VÍS, Sláturfélag Vopnfirðinga
Dagskrá

Föstudagur 1. maí

Kl. 12.00 Setning málþings

Kl. 12.15 Björn Stefánsson dr. scient: Um atkvæðagreiðslur

Kl. 12.45 Guðjón Friðriksson sagnfræðingur: Vopnafjörður – danskur verslunarstaður

Kl. 13.15 Þuríður Hjálmtýsdóttir sálfræðingur: Menning okkar, gildi og breytt heimsmynd

Kl. 14 – 16 1. maí kaffi að hætti Vopnfirðinga í Félagsheimilinu Miklagarði

Kl. 16.00 Ari Hallgrímsson, Halldór K. Halldórsson, Þórunn Egilsdóttir verkefnastjóri: Kynning á Myndagrúski og starfsemi Kaupvangs

Kl. 16.30 Salvör Aradóttir leikhúsfræðingur: Allir hafa sögu að segja. Sagnagerð á tímum stafrænna miðla

Kl. 17.00 Jón Yngvi Jóhannsson bókmenntafræðingur: Um Heiðaharm Gunnars Gunnarssonar

Kl. 17.30 Kaffihlé

Kl. 17.40 Ágústa Þorkelsdóttir fyrrverandi bóndi : Menningararfur Vopnfirðinga – styrkur fyrir samfélagið í dag?

Kl. 18.10 Sólveig Ólafsdóttir sagnfræðingur og verkefnastjóri: Íslenska eldhúsið – matur og mannlíf á liðinni öld