(354) 562 8565 ra@akademia.is
  1. Forsíða
  2.  » 
  3. Fréttir
  4.  » Opið fyrir umsóknir í Stúdentastofu ReykjavíkurAkademíunnar

Opið fyrir umsóknir í Stúdentastofu ReykjavíkurAkademíunnar

by | 17. ágú, 2017 | Fréttir

studentastofaReykjavíkurAkademían býður háskólanemum í framhaldsnámi (meistara- eða doktorsnámi) í félags- og hugvísindum tímabundna vinnuaðstöðu í svonefndri Stúdentastofu í húsakynnum Akademíunnar að Þórunnartúni 2 í Reykjavík á mjög góðu verði eða krónur 10.000. – á mánuði, þjónustugjöld innifalin, fyrir tímabilið 1. september 2017 til 31. desember 2017.

Í boði er skrifborð í skrifstofu með öðrum auk aðgangs að sameiginlegum rýmum Akademíunnar; eldhúsi, fundarherbergi og fyrirlestrasal. Þráðlaus nettenging er í húsinu, sem og ljósritunarvél og skanni, auk þess sem bókasafn Dagsbrúnar er þar til afnota.  ReykjavíkurAkademían er kraftmikið fræðasamfélag þar sem má finna fjölda fræðimanna, unga jafnt sem þrautreynda, á fjölmörgum sviðum hug- og félagsvísinda. Í upphafi dvalar er reiknað með að styrkþegar kynni verkefni sín fyrir fræðimönnum RA. Stúdentaaðstaðan er hugsuð sem fjögurra mánaða dvöl fyrir hvern umsækjanda. Auglýst er eftir umsóknum fyrir vetrarönnina, en næsta tímabil á eftir er frá 1. janúar til 30. apríl 2018 og síðan frá 1. maí til 31. ágúst 2018. Að lokinni fjögurra mánaða dvöl geta stúdentar sótt um annað skrifstofupláss innan ReykjavíkurAkademíunnar á almennu verði. Umsóknir sendist ReykjavíkurAkademíunni í tölvupósti: ra@akademia.is. Ekki eru notuð sérstök eyðublöð en umsækjendur eru beðnir um að tilgreina stuttlega viðfangsefni sín, fræðasvið, hvar þeir eru í námi og áætluð námslok auk almennra upplýsinga. Umsóknir skulu berast í síðasta lagi 28. ágúst og mun niðurstaða úthlutunarnefndar liggja fyrir fljótlega eftir það.

Allar nánari upplýsingar gefur Ólafur Hrafn í síma 562 8561 eða í tölvupósti (ra@akademia.is).