(354) 562 8565 ra@akademia.is
  1. Forsíða
  2.  » 
  3. Fréttir
  4.  » Opnað fyrir umsóknir í Stúdentastofu ReykjavíkurAkademíunnar

Opnað fyrir umsóknir í Stúdentastofu ReykjavíkurAkademíunnar

by | 4. maí, 2016 | Fréttir

ReykjavíkurAkademían býður háskólanemum í framhaldsnámi (meistara- eða doktorsnámi) í félags- og hugvísindum, tímabundna vinnuaðstöðu til leigu í svonefndri Stúdentastofu í húsakynnum ReykjavíkurAkademíunnar að Þórunnartúni 2 í Reykjavík.

Vinnuaðstaðan er á mjög góðu verði eða 10.000kr á mánuði, þjónustugjöld innifalin, fyrir tímabilið frá 1. maí 2016 til 31. ágúst 2016.
Stúdentastofan er hugsuð sem fjögurra mánaða dvöl fyrir hvern umsækjanda. Að þeim tíma loknum geta stúdentar sótt um annað skrifstofupláss innan ReykjavíkurAkademíunnar á almennu verði.

Í boði er skrifborð á skrifstofu með fræðimönnum Akademíunnar og auk þess aðgangur að eldhúsi og fundarherbergi. Þráðlaus nettenging er í húsinu sem og ljósritunarvél og skanni. Safnkostur og þjónusta Bókasafns Dagsbrúnar, sem er í sama húsi, er einnig innifalið.

ReykjavíkurAkademían er kraftmikið fræðasamfélag þar sem má finna fjölda fræðimanna, ungra jafnt sem þrautreyndra, á fjölmörgum sviðum hug- og félagsvísinda. Í upphafi dvalar er reiknað með að styrkþegar kynni verkefni sín fyrir fræðimönnum RA. 

Umsóknir sendist ReykjavíkurAkademíunni, Þórunnartúni 2, 105 Reykjavík eða í tölvupósti á ra@akademia.is
Ekki eru notuð sérstök eyðublöð en umsækjendur eru beðnir að tilgreina stuttlega viðfangsefni sín, fræðasvið, hvar þeir eru í námi og áætluð námslok auk almennra upplýsinga.

Allar nánari upplýsingar gefur Ólafur Hrafn í síma 562 8561 eða um netfangið ra@akademia.is.