(354) 562 8565 ra@akademia.is
  1. Forsíða
  2.  » 
  3. Fréttir
  4.  » ReykjavíkurAkademían skrifar undir samstarfssamning við Reykjavíkurborg

ReykjavíkurAkademían skrifar undir samstarfssamning við Reykjavíkurborg

by | 2. okt, 2017 | Fréttir

Undirritun samningsReykjavíkurAkademían kynnir með stolti nýjan samstarfssamning við Reykjavíkurborg sem undirritaður var 29. september síðastliðinn. Markmið samningsins er að greina óleyfilega búsetu (þ.e. búsetu í atvinnuhúsnæði) í Reykjavík með áherslu á tilkomu hennar og birtingarmynd, aðbúnað og réttindi íbúa, m.a. með tilliti til mansals og réttinda verkafólks. ReykjavíkurAkademían hefur umsjón með verkefninu og hefur ráðið Jón Rúnar Sveinsson, félagsfræðing, í tímabundna stöðu verkefnisstjóra. Niðurstöður verða svo kynntar á ráðstefnu um óleyfilega búsetu föstudaginn 17. nóvember, kl. 13:00-17:00.

Dagskrá og efni ráðstefnunnar verða kynnt fljótlega á heimasíðu RA.