(354) 562 8565 ra@akademia.is
  1. Forsíða
  2.  » 
  3. Fréttir
  4.  » ReykjavíkurAkademían leitar að nýdoktorum í menningar, hug- og félagsvísindum

ReykjavíkurAkademían leitar að nýdoktorum í menningar, hug- og félagsvísindum

by | 9. maí, 2011 | Fréttir

reykjavkur akademan.jpg
ReykjavíkurAkademían leitar að nýdoktorum í menningar,  hug- og félagsvísindum

ReykjavíkurAkademían, rannsóknarstofnun og nýsköpunarmiðstöð í menningar, hug- og félagsvísindum, leitar eftir samstarfi við umsækjendur um um START rannsóknastöðustyrki Rannsóknasjóðs. Sjá www.rannis.is
Um er að ræða áætlun um nýja rannsóknastöðustyrki sem veittir eru í samstarfi við Mannauðsáætlun Evrópusambandsins (PEOPLE / Marie Curie). Hæfir til að sækja um eru allir þeir sem lokið hafa doktorsprófi á síðastliðnum fimm árum.

Leitað er eftir fræðimönnum á sviði menningar, hug- og félagsvísinda sem hafa áhuga á að sækja um styrki í samstarfi við ReykjavíkurAkademíuna og stunda rannsóknir sínar innan vébanda hennar.
Áætlunin skiptist í fjóra undirflokka:

Outgoing fellowships
Incoming fellowships
Reintegration fellowships
Fellowships without mobility

Umsóknarfrestur er til 15. júní 2011 (kl. 16:00). Styrkirnir eru veittir í 12-24 mánuði með möguleika á allt að 12 mánaða framlengingu.

Allar nánari upplýsingar um styrkina má finna á heimasíðu Rannsóknamiðstöðvar Íslands, www.rannis.is en upplýsingar um ReykjavíkurAkademíuna gefur Sólveig Ólafsdóttir framkvæmdastjóri, solveig@akademia.is.

Jafnfram auglýsir ReykjavíkurAkademían starfsaðstöðu fyrir sjálfstætt starfandi fræðimenn lausa til umsóknar frá og með 1. júní næstkomandi.  Nánari upplýsingar veitir skrifstofa ReykjavíkurAkademíunnar, ra@akademia.is, s. 562 8561, www.akademia.is