1. Forsíða
  2.  » 
  3. Fréttir
  4.  » Samningur við Reykjavíkurborg vegna ársins 2019

Samningur við Reykjavíkurborg vegna ársins 2019

by | 29. Dec, 2019 | Fréttir

Þjónustusamningur við Reykjavíkurborg

Um árabil hefur þjónustusamningur Akademíunnar við Reykjavíkurborg verið mikilvægur þáttur í starfsemi  hennar og staðið undir fjölbreyttum viðburðum og þjónustuverkefnum sem hafa verið leyst vel af hendi. Fyrsti samningurinn sem var til 3ja ára var undirritaður árið 2004 og þar var kveðið á um að fræðimenn RA taki að sér ýmis verkefni, ýmist að eigin frumkvæði eða að beiðni borgarinnar. Samningurinn var endurnýjaður árið 2007. Frá árinu 2010 hefur samningur verið gerður til árs í senn og áhersla verið á skilvirkan samning sem kemur báðum aðilum til góða. Nýlega var samningur fyrir árið 2019 undirritaður og fjármagnið að venju eyrnamerkt framsæknum verkefnum og þjónustuverkum.