(354) 562 8565 ra@akademia.is
  1. Forsíða
  2.  » 
  3. Fréttir
  4.  » Söguþing 2012

Söguþing 2012

by | 13. mar, 2012 | Fréttir

Fjórða íslenska söguþingið verður haldið í húsakynnum Háskóla Íslands 7.-10. júní 2012. Þessi þing eru orðin fastur viðburður, fyrsta þingið var haldið árið 1997, annað árið 2002 og hið þriðja árið 2006. Þingið nú þjónar sem áður allt í senn sem vettvangur fyrir kynningu á niðurstöðum nýjustu rannsókna í íslenskri sagnfræði, veitir yfirlit yfir stöðu þeirra nú og þar er rætt um hvert stefnir í rannsóknum á sviðinu.

Þingið verður veglegt og í boði verða á þriðja tug málstofa um hin ýmsu efni með yfir 90 fyrirlestrum. Ber þetta glöggan vott um öflugar rannsóknir á hinum ýmsu sviðum íslenskrar sögu. Þingið verður líka óvenju alþjóðlegt í þetta sinn en Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands hefur boðið þremur heimsþekktum sagnfræð­ingum til þingsins, þeim Lindu Colley prófessor við Princeton háskóla, David Cannadine, prófessor við Prince­ton háskóla og Geoff Eley, prófessor við háskólann í Michigan í Bandaríkjunum. Linda Colley mun flytja Jóns Sigurðssonar-fyrirlesturinn þetta árið. Þar að auki munu tveir erlendir fyrirlesarar tala á opinni málstofu um Evrópumál sem styrkt er af Evrópustofu. Þetta eru þau Anne Katherine Isaacs, prófessor við háskólann í Písa, og Anne Deighton, prófessor við háskólann í Oxford. Að síðustu mun Karl-Erik Frandsen, lektor við Kaupmannahafnarháskóla, tala í málstofu um sjúkdómafaraldra á fyrri tíð.

Fullt ráðstefnugjald er 9.900 krónur en nemendur greiða tæplega hálft gjald, eða 4.900 krónur.