1. Forsíða
  2.  » 
  3. Fréttir
  4.  » STÚDENTASTOFA REYKJAVÍKURAKADEMÍUNNAR

STÚDENTASTOFA REYKJAVÍKURAKADEMÍUNNAR

by | 20. Apr, 2012 | Fréttir

student.jpg
ReykjavíkurAkademían býður háskólanemum í framhaldsnámi (meistara- eða doktorsnámi) tímabundna vinnuaðstöðu í svonefndri Stúdentastofu í húsakynnum Akademíunnar að Hringbraut 121 í Reykjavík (sjá www.akademia.is) á mjög góðu verði eða krónur 6.000.- á mánuði, þjónustugjöld innifalin, fyrir tímabilið 1. maí 2012 til 31. ágúst 2012.

Í boði er skrifborð í skrifstofu með öðrum auk aðgangs að sameiginlegum rýmum Akademíunnar; eldhúsi, fundarherbergi og fyrirlestrasal. Þráðlaus nettenging er í húsinu, sem og ljósritunarvél, faxtæki  og skanni, auk þess sem bókasafn Dagsbrúnar er þar til afnota.  ReykjavíkurAkademían er kraftmikið fræðasamfélag þar sem má finna fjölda fræðimanna, ungra jafnt sem þrautreyndra, á fjölmörgum fræðasviðum. Í upphafi dvalar er reiknað með að styrkþegar kynni verkefni sín fyrir fræðimönnum RA.

Stúdentaaðstaðan er hugsuð sem fjögurra mánaða dvöl fyrir hvern umsækjanda. Auglýst er eftir umsóknum fyrir sumarönnina, en næsta tímabil á árinu 2012 1. september til 31. desember verður auglýst í ágúst.

Að lokinni fjögurra mánaða dvöl geta stúdentar sótt um annað skrifstofupláss innan ReykjavíkurAkdemíunnar á almennu verði.

Umsóknir sendist ReykjavíkurAkademíunni, Hringbraut 121, 107 Reykjavík, eða í tölvupósti:  ra@akademia.is . Ekki eru notuð sérstök eyðublöð en umsækjendur eru beðnir að tilgreina stuttlega viðfangsefni sín, fræðasvið, hvar þeir eru í námi og áætluð námslok auk almennra upplýsinga.

Allar nánari upplýsingar gefur Ólafur Hrafn í síma 562 8561 eða um netfangið ra@akademia.is