(354) 562 8565 ra@akademia.is
  1. Forsíða
  2.  » 
  3. Fréttir
  4.  » Stúdentastofa Reykjavíkur

Stúdentastofa Reykjavíkur

by | 23. ágú, 2010 | Fréttir

reykjavikurborg.png

lg rastort.jpg

 

 


ReykjavíkurAkademían og Reykjavíkurborg kynna –

 

Stúdentastofu Reykjavíkur og Reykjavíkurstyrk Akademíunnar

Aðstaða til verkefnavinnu og rannsóknarstyrkur

ReykjavíkurAkademían og Reykjavíkurborg auglýsa eftir umsóknum frá háskólastúdentum í framhaldsnámi um vinnuaðstöðu án endurgjalds við rannsóknarverkefni sem tengjast borginni og borgarfræðum almennt.

Vinnuaðstaðan er innan ReykjavíkurAkademíunnar við Hringbraut og er veitt endurgjaldslaust til þriggja mánaða. Boðið er upp á aðstöðu fyrir allt að 6 háskólastúdenta og taka þeir þátt í starfsemi Akademíunnar á þeim tíma.

Jafnframt óska Reykjavíkurborg og ReykjavíkurAkademían eftir umsóknum um rannsóknarstyrk að upphæð kr. 500.000 til rannsóknarverkefnis með hagnýtt gildi fyrir Reykjavíkurborg. Rannsóknarstyrkurinn er veittur einum háskólastúdent í Stúdentastofu Reykjavíkur og er þáttur í gildandi samstarfssamningi ReykjavíkurAkademíunnar og Reykjavíkurborgar.

Samráðsnefnd á vegum Reykjavíkurborgar og ReykjavíkurAkademíunnar metur umsóknirnar.

Vinsamlega sendið umsóknir um aðstöðu og rannsóknarstyrk með ferilskrá á netfangið ra@akademia.is fyrir 15. september næstkomandi.