(354) 562 8565 ra@akademia.is
  1. Forsíða
  2.  » 
  3. Fréttir
  4.  » Stuðningsyfirlýsing Félags ReykjavíkurAkademíunnar við launabaráttu stundakennara

Stuðningsyfirlýsing Félags ReykjavíkurAkademíunnar við launabaráttu stundakennara

by | 24. apr, 2012 | Fréttir, Opinber umræða

reykjavkurakademan logo medium.png

ReykjavíkurAkademían, félag sjálfstætt starfandi fræðimanna, lýsir yfir stuðningi við launabaráttu stundakennara við háskólastofnanir landsins.

Þekking sjálfstætt starfandi fræðimanna, sem leggja háskólum lið með stundakennslu, er dýrmæt fyrir háskólasamfélagið í heild sinni því niðurstöður af nýjustu og framsæknustu rannsóknum verða ekki síst til á vettvangi þeirra.

Til að tryggja gæði og fagmennsku verður að launa alla háskólakennslu með góðum kjörum til handa þeim sem hana stunda.