(354) 562 8565 ra@akademia.is
  1. Forsíða
  2.  » 
  3. Fréttir
  4.  » Útvarpsþættir Lilju Hartardóttur endurfluttir í RÚV

Útvarpsþættir Lilju Hartardóttur endurfluttir í RÚV

by | 28. jan, 2021 | Fréttir

Lilja Hjartardóttir stjórnmálafræðingurÞessa dagana er RÚV að endurflytja útvarpsþætti Lilju Hjartardóttur um stöðu Bandaríkjamanna af afrískum uppruna. Í þáttunum sem eru fjórir fjallar Lilja um sögu svartra Bandaríkjamanna, minnihlutahóps sem er enn í efnahagslegri, félagslegri og stjórnmálalegri varnarstöðu eftir 400 ára sambúð með hvíta meirihlutanum. Staða þeirra er í hrópandi mótsögn við samfélag sem fyrst allra kenndi sig við réttindi og frelsi í Sjálfstæðisyfirlýsingunni og Stjórnarskránni. Horft er bæði til samtímans og fortíðar. Málflutningur nýs Bandaríkjaforseta, Donalds Trump, um réttindi og stöðu svartra er krufinn, spurt hvers vegna andstaða meirihlutans sé svo mikil og hvers vegna barátta og andóf hafi ekki borið meiri árangur.

Þættirnir sem eru frá árinu 2017 og eiga, ef eitthvað er, enn meira erindi við þjóðina nú í byrjun árs 2021.

Hægt að nálgast þættina í spilara RUV