1. Forsíða
  2.  » 
  3. Fréttir
  4.  » Vinnuaðstaða til leigu

Vinnuaðstaða til leigu

by | 10. Jun, 2018 | Fréttir

Starfar þú sjálfstætt á vettvangi menningar-, hug- og félagsvísinda og ert í leit að skrifstofuhúsnæði?  Ef svo er, gæti ReykjavíkurAkademían verið svarið fyrir þig. skulatumnn ekkideli

ReykjavíkurAkademían ses (RA ses) er rannsókna- og nýsköpunarstofnun sem veitir sjálfstætt starfandi vísinda- og listamönnum starfsaðstöðu og er vettvangur menningar- og fræðilegra viðburða. Í boði er þægileg vinnuaðstaða, wifi, aðgangur að fundarsal og prentara og stórskemmtilegur félagsskapur. Skrifstofur ReykjavíkurAkademíunnar eru vel staðsettar í Þórunnartúni 2 (áður Skúlatún), steinsnar frá Hlemmi og miðbæjarmannlífinu. 

Nánari upplýsingar fást í síma 562-8565 eða með því að senda tölvupóst á netfangið: ra@akademia.is

Fundarsalur RA Oft er glatt á hjalla