(354) 562 8565 ra@akademia.is
  1. Forsíða
  2.  » 
  3. Fréttir
  4.  » Fjöruverðlaunin 2021: Konur sem kjósa

Fjöruverðlaunin 2021: Konur sem kjósa

by | 9. mar, 2021 | Fréttir

Konur sem kjósa: Aldarsaga

Konur sem kjósa: Aldarsaga

Konur sem kjósa: Aldarsaga  eftir þær Erlu Huldu Halldórsdóttur, Kristínu Svövu Tómasdóttur, Ragnheiði Kristjánsdóttur og Þorgerði H. Þorvaldsdóttur hlaut Fjöruverðlaunin árið 2021 í flokki fræðibóka og rita almenns eðlis. Þorgerður sem alla tíð starfaði við ReykjavíkurAkademíuna féll frá síðastliðið sumar og eftirlifnandi eiginmaður hennar, Ágúst Ásgeirsson veitti verðlaununum viðtöku fyrir hennar hönd.

Í rökstuðning dómnefndar segir: “Konur sem kjósa er aldarsaga íslenskra kvenna sem fullgildra borgara. Í gegnum ellefu sneiðmyndir af íslensku samfélagi, afmarkaðar við eitt kosningaár á hverjum áratug frá því að íslenskar konur fengu kosningarétt, fær lesandinn djúpa og marglaga innsýn í veröld íslenskra kvenna.  Höfundar skyggnast bak við mýtuna um að íslenskar konur séu fegurstar og sjálfstæðastar allra kvenna og taka til umfjöllunar hvernig lagalegt og félagslegt jafnrétti kynjanna þróaðist á Íslandi. Fjallað er um hvernig konur sigruðust á þeim hindrunum sem blöstu við, til dæmis baráttuna um launajafnrétti, lífeyri eða aðgengi að salernisaðstöðu á vinnustöðum. Í þessari mikilvægu bók um sögu íslenskra kvenna stígur fram margradda kór sem er vissulega ekki sammála um allt, en er þó samstíga í baráttunni fyrir iðkun borgararéttinda.”

Fjöruverðlaunin 2021 Verðlaunahafar

ReykjavíkurAkademían óskar höfundunum innilega til hamingju með verðskuldaða viðurkenningu.