(354) 562 8565 ra@akademia.is
  1. Forsíða
  2.  » 
  3. Fréttir
  4.  » Sjálfstæðir rannsakendur. Afmælismálþing ReykjavíkurAkademíunnar II

Sjálfstæðir rannsakendur. Afmælismálþing ReykjavíkurAkademíunnar II

by | 28. okt, 2022 | Fréttir, Málþing og raðir, Viðburðir RA

Málþingið Sjálfstæðir rannsakendur 4. nóvember 2022

Gestir málþingsins Sjálfstæðir rannsakendur

Föstudaginn 4. nóvember 2022 hélt ReykjavíkurAkademían sérlega vel heppanð málþing í fyrirlestrarsal Þjóðarbókhlöðu undir yfirskriftinni Sjálfstæðir rannsakendur – umhverfi og áskoranir.

Saman drógu fyrirlesarar og þeir sem sátu í panel upp mynd af starfi og starfsumhverfi sjálfstæðra rannsakenda og komu fram með tillögur sem munu varða veginn fram á við.

Dagskrá málþingsins má sjá fyrir neðan og hér er upptaka af málþinginu

 

ReykjavíkurAkademían þakkar öllum þeim sem tóku þátt í málþingu, skipuleggjendum, fundarstjóra, fyrirlesurum, þeim sem sátu og stýrðu umræðum í panel.

Málþingið er annað af tveimur málþingum sem haldið var á árinu til þess að fagna 25 ára afmæli ReykjavíkurAkademíunnar sem haldið er uppá undir yfirskriftinni Auðlegð þekkingar í aldarfjórðung. Fyrra málþingið ,,Dútlað við þjóðarsálina” var haldið í Safnahúsinu á afmælisdeginum 7. maí 2022.

 

Dagskrá

15:00    Ávarp.
Lilja Hjartardóttir stjórnmálafræðingur, formaður  ReykjavíkurAkademíunnar.

15:10     Á djúpslóð. Sjálfstætt starfandi sagnfræðingur með tímabilið 1300 til 1700 sem sérsvið segir frá.
Dr. Árni Daníel Júlíusson sérfræðingur við Háskóla Íslands, vísindamaður við Stofnun Vilhjálms Stefánssonar og sjálfstætt starfandi fræðimaður hjá ReykjavíkurAkademíunni.

15:30    Tveir fylgidjöflar þess að vera SSF.
Þórunn Valdimarsdóttir, sagnfræðingur og rithöfundur í ReykjavíkurAkademíunni.

15:40     Samkeppnissjóðirnir og sjálfstætt starfandi fræðafólk.
Ágúst H. Ingþórsson forstöðumaður Rannís.

15:55     Umræður og kaffi.

16:10     Akademónar á Akureyri. Umhverfi og áskoranir.
Margrét Guðmundsdóttir sagnfræðingur í AkureyrarAkademíunni.

16:20    Vá! Afurðir sjálfstætt starfandi fræðafólks við Akademíurnar. Gagnagrunnur unninn fyrir styrk úr Nýsköpunarsjóði námsmanna.
Jens Arinbjörn Jónsson sagnfræðingur og félagi í Félagi ReykjavíkurAkademíunnar og  Pétur Stefánsson nemi í sagnfræði við Háskóla Íslands.

16.30     Opinn aðgangur? Útgáfa, kostnaður og aðgangur að vísindaefni.
Sigurgeir Finnsson forstöðumaður Bókasafns Dagsbrúnar og sérfræðingur ReykjavíkurAkademíunnar.

16:40    Hvað svo? Panell.
Umræðustjóri dr. Ingunnar Ásdísardóttur þjóðfræðingur og sjálfstætt starfandi við ReykjavíkurAkademíuna.

Ágúst H. Ingþórsson, dr. Árni Daníel Júlíusson, dr. Unnur G. Óttarsdóttir listmeðferðarfræðingur og sjálfstætt starfandi við ReykjavíkurAkademíuna, dr Sólveig Ásta Sigurðardóttir stundakennari við Háskóla Íslands  og sjálfstætt starfandi við ReykjavíkurAkademíuna og Atli Antonsson doktorsnemi við Háskóla Íslands og sjálfstætt starfandi við ReykjavíkurAkademíuna.

Málþingsstjóri: dr. Sólveig Ólafsdóttir sagnfræðingur, nýdoktor við Háskóla Íslands og félagi í Félagi ReykjavíkurAkademíunnar.