1. Forsíða
  2.  » 
  3. Þjónusta
  4.  » Þjónusta við félög og fyrirtæki

Þjónusta við félög og fyrirtæki

Skrifstofuaðstaða í ReykjavíkurAkademíunni

Stofnanir, félög og tengd hug- og félagsvísindum og lítil fyrirtæki hafa komið sér fyrir í ReykjavíkurAkademíunni og njóta þar nálægðar við og auðga hið fjölbreytta samfélag fræðimanna. Kostirnir eru margir. Fljótlegt er að leita til samfélagsins með hverskonar verkefni og viðvik. Auðvelt er að byggja upp rannsóknar- og vinnuhópa með litlum fyrirvara og gott að tilheyra vinnustað sem einkennist af þægilegu, þverfaglegu andrúmslofti þar sem málefni stundarinna og fræðanna eru stöðugt brotin til mergjar.

ReykjavíkurAkademían er staðsett á 2. hæð í Þórunnartúni 2, í Reykjavík og skrifstofunar frá 11-25 fermetrum að stærð. Eftirfarandi er innifalið í leigunni :

  • Þráðlaust net, prentari og skanni
  • Rekstarvörur og búnaður Akademíunnar
  • Aðgangur að fundarherbergi, eldhúsi og fundarsal án endurgjalds
  • Þátttaka í fjölfaglegu samstarfi og viðburðum á vegum Akademíunnar
  • Afsláttur Akademíunnar hjá Tæknihorninu

 

Aðild að Félagi ReykjavíkurAkademíunnar.

Eftirfarandi er innifalið í félagsaðild:

  • Fast aðsetur og pósthólf fyrir félagið.
  • Aðgang að þráðlausu neti, prentara og skanna.
  • Aðgangur að Ráðslagi, fundarherbergi á fyrstu hæð Akademíunnar sem búið er streymisbúnaði.
  • Aðgangur að Dagsbrún, fyrirlestrarsal á fyrstu hæð Akademíunnar fyrir félagsfundi eftir kl. 16 á virkum dögum og um helgar. Hafa skal samráð við skrifstofu eða bókasafn.
  • Aðgangur að Dagsbrún, fyrirlestrarsal fyrir opna viðburði í samvinnu við RA og í samráði við skrifstofu. Þar er búnaður til þess að streyma og taka upp viðburði. Þá er aðstaða til að bjóða upp á veitingar. Opnir viðburðir eru að jafnaði einnig auglýstir á miðlum RA.
  • Möguleika á að hrinda af stað eða taka þátt í ýmsum öðrum samstarfsverkefnum og auglýsingum á miðlum RA.
  • Möguleiki á samstarfi við stjórn RA um verkefni sem miða að því að bæta almennt starfsumhverfi fræðafólks.
  • Aðkoma ReykjavíkurAkademíunnar að kynningu viðburða á vegum félagsins.
  • Afsláttur á þjónustu hjá Tæknihliðinni – Tæknihorninu.
  • Aðild að Akademónar, póstlista Félags ReykjavíkurAkademíunnar

Nánari upplýsingar fást á skrifstofu Akademíunnar. Símanúmer skrifstofu er  562 8565 og netfang ra [hja] akademia.is.