1. Forsíða
  2.  » 
  3. Fréttir
  4.  » Stefnuskrá stjórnar RA 2021-2022

Stefnuskrá stjórnar RA 2021-2022

by | 15. May, 2022 | Fréttir, Skýrslur og greinargerðir

Stefnuskrá stjórnar RA 2021-2022Samhliða útkomu stefnu ReykjavíkurAkademíunnar 2021−2025 hóf stjórn RA vinnu við að efla að efla stofnunina og vinna markvisst að því að bætta og auka þjónustuna í Þórunnartúni 2 við félagsfólk og að tala máli þess bæði á vinnumarkaði og í umhverfi rannsókna.

Lokamarkmiðið er að ReykjavíkurAkademían  verði miðja samfélags sjálfstætt starfandi fræðafólks og starfi í þágu þess og samfélagsins alls að því að tengja, miðla, hvetja, styðja og skapa.

Verkefninu hefur verið skipt niður í fjögur undirmarkmið sem þó skarast með einum eða öðrum hætti:

I. skilgreina hópinn og fylkja liði
II. styrkja rannsóknainnviði og umhverfi rannsókna
III. leiða í ljós hagræn áhrif af starfsemi sjálfstætt starfandi fræðafólks
IV. gæta hagsmuna fræðafólks á vinnumarkaði

Fjölmörg þeirra verkefna sem unnið er að innan Akademíunnar tengjast verkefninu með einum eða öðrum hætti. Stefnuskrá stjornar RA 2021-2022: RA-2022-1