Hvað er?

ReykjavíkurAkademían er aðsetur sjálfstætt starfandi fræðimanna í hug- og félagsvísindum. Hún var stofnuð 7. maí 1997 en flutti inn í núverandi húsnæði í JL-húsinu við Hringbraut 9. nóvember 1998. Auk hinna sjálfstætt starfandi fræðimanna er fjöldi stofnana, félaga og fyrirtækja með aðsetur í húsnæðinu. ReykjavíkurAkademían heldur ráðstefnur, skipuleggur fyrirlestra og kynningar á rannsóknum félaga, og myndlistarsýningar í húsnæði RA eru fastur liður í starfseminni.


Akademían leitast við að vera tengiliður:

á milli ólíkra fræðigreina á háskólastigi

á milli kynslóða innan fræðasamfélagsins

á milli kynja innan fræðasamfélagsins

á milli fræða og lista

á milli samfélags og fílabeinsturna


Gildi

 

ReykjavíkurAkademían er byggð upp neðan frá, af fræðimönnunum sjálfum með þeirra eigin þarfir í fyrirrúmi. Hún er lýðræðislegur vinnustaður sem er óháður skipunum að ofan, frelsi í hugsun og hegðun er höfð í öndvegi. Vönduð fræðileg vinnubrögð eru viðhöfð í bland við frjóa umræðu sem byggir á því að RA er þverfagleg fræðastofnun, þar hittast daglega fulltrúar hinna ýmsu fræðigreina, mannfræði og bókmenntafræði, þjóðfræði og sagnfræði, stjórnmálafræði og guðfræði, svo eitthvað sé nefnt. ReykjavíkurAkademían er annar stærsti vinnustaður hug- og félagsvísindamanna á landinu.

 
Icelandic (IS)English (United Kingdom)