1. Forsíða
  2.  » 
  3. Útgáfa RA
  4.  » 
  5. Skýrslur og greinargerðir
  6.  » Aðgerðaáætlun stjórnar 2022-2024

Aðgerðaáætlun stjórnar 2022-2024

by | 26. Apr, 2024 | Skýrslur og greinargerðir, Útgáfa RA

Samhliða útgáfu stefnu ReykjavíkurAkademíunnar 2021−2025 ákvað stjórn stofnunarinnar að vinna markvisst að því að bætta og auka þjónustuna í Þórunnartúni 2 við félagsfólk og að tala máli þess bæði á vinnumarkaði og í umhverfi rannsókna. Gefin var út Stefnuskrá stjórnar RA 2021-2022 eða aðgerðaáætlun sem unnið var eftir með það að markmiði að ReykjavíkurAkademían verði miðja samfélags sjálfstætt starfandi fræðafólks og starfi í þágu þess og samfélagsins alls að því að tengja, miðla, hvetja, styðja og skapa.

Stjórn ReykjavíkurAkadmeíunnar 2022-2024 vann eftir stefnuskránni og hefur nú uppfært hana undir heitinu  Aðgerðaáætlun stjórnar 2022-2024. Sjá:  Adgerdaaetlun stjornar 2022-2024.

Eins og áður er verkefninu skipt í fjögur undirmarkmið sem öll skarast með einum eða öðrum hætti:

I. skilgreina hópinn og fylkja liði
II. styrkja rannsóknainnviði og umhverfi rannsókna
III. leiða í ljós hagræn áhrif af starfsemi sjálfstætt starfandi fræðafólks
IV. gæta hagsmuna fræðafólks á vinnumarkaði