Markmið H21 málþinga (Hugmyndir 21. aldarinnar) er að stuðla að þverfaglegri umræðu innan félags- og hugvísinda um strauma og stefnur í mannvísindum samtímans. Á hverju málþingi er stefnt saman fjórum nýdoktorum á sviði félags- og hugvísinda sem kynna rannsóknir sínar, ræða kenningarlegar undirstöður og tengingu við fræðilega strauma samtímans. Til þess að ná fram settum markmiðum eru fengnir fyrirlesarar úr ólíkum greinum hug- og félagsvísinda og við skipulag málþinganna er reynt að efla umræður og finna sameiginlega þræði fræðimannanna.
Sjálfstætt starfandi orkurannsóknarstofan /The Autonomous Energy Research Lab
Jaimes Mayhew opnar sýningu föstudaginn 11. Maí 2012, kl. 16.00. Í Hoffmannsgalleríi ReykjavíkurAkademíunnar á Hringbraut 121 (JL-húsinu) 4. hæð. Í Hoffmannsgalleríi ReykjavíkurAkademíunnar, mun Jaimes sýna afrakstur skráningar byggðrar á performans rannsóknum og...
Árshátíð ReykjavíkurAkademíunnar.
Árshátíð ReykjavíkurAkademíunnar, Félags sjálfstætt starfandi fræðimanna, verður haldinn laugardaginn 28. apríl kl. 19:30 í fundarsal félagsins að Hringbraut 121, 4. hæð. Á dagskrá er almenn gleði, fingramatur og dans. Þema árshátíðarinnar verður að þessu sinni...
Stuðningsyfirlýsing Félags ReykjavíkurAkademíunnar við launabaráttu stundakennara
ReykjavíkurAkademían, félag sjálfstætt starfandi fræðimanna, lýsir yfir stuðningi við launabaráttu stundakennara við háskólastofnanir landsins. Þekking sjálfstætt starfandi fræðimanna, sem leggja háskólum lið með stundakennslu, er dýrmæt fyrir háskólasamfélagið í...
STÚDENTASTOFA REYKJAVÍKURAKADEMÍUNNAR
ReykjavíkurAkademían býður háskólanemum í framhaldsnámi (meistara- eða doktorsnámi) tímabundna vinnuaðstöðu í svonefndri Stúdentastofu í húsakynnum Akademíunnar að Hringbraut 121 í Reykjavík (sjá www.akademia.is) á mjög góðu verði eða krónur 6.000.- á mánuði,...
Árskýrsla ReykjavíkurAkademíunnar árið 2011.
Sólveig Ólafsdóttir framkvæmdastjóri er höfundur skýrslunnar. Í henni er ítarlegt yfirlit yfir starfsemi RA, daglegan rekstur, starfsmannahald og helstu rannsóknarverkefni innan RA. Einnig er í skýrslunni yfirlit yfir ráðstefnur og málþing sem haldin voru í...
Árskýrsla ReykjavíkurAkademíunnar árið 2011 er komin út.
Sólveig Ólafsdóttir framkvæmdastjóri er höfundur skýrslunnar. Í henni er ítarlegt yfirlit yfir starfsemi RA, daglegan rekstur, starfsmannahald og helstu rannsóknarverkefni innan RA. Einnig er í skýrslunni yfirlit yfir ráðstefnur og málþing sem haldin voru í...
Aðalfundur 2012
Aðalfundur ReykjavíkurAkademíunnar, Félags sjálfstætt starfandi fræðimanna, verður haldinn föstudaginn 13. apríl kl. 12:15 í fundarsal félagsins að Hringbraut 121, 4. hæð. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt lögum félagsins og stjórnarkjör. Dagskrá...
Skráning hafinn
Búið er að opna fyrir skráningu á söguþingið. Nú þegar hafa um 90 fyrirlesarar tilkynnt þátttöku og settar hafa verið upp 20 málstofur.Ráðstefnugjald er 9.900 krónur og 4.900 fyrir háskólanema.
BASICS – VERKEFNIÐ
Á árunum 2011-2013 tók ReykjavíkurAkademían ásamt stofnunum og samtökum frá fimm öðrum löndum þátt í Grundtvig fullorðinsfræðsluverkefni Evrópusambandsins. Verkefnið hét BASICS – bibliodrama as a way of intercultural learning for adults eða: Söguspuni sem aðferð við...
Skráning
Opnað verður fyrir skráningu á Söguþingið þann 23. mars næstkomandi. Þátttakendur geta skráð sig á heimasíðu þingsins eða haft samband við Kristbjörn í síma 847-4107 eða gegnum netfangið [email protected]. Þátttökugjald er 9.900 krónur og 4.500 fyrir nemendur í...




