Markmið H21 málþinga (Hugmyndir 21. aldarinnar) er að stuðla að þverfaglegri umræðu innan félags- og hugvísinda um strauma og stefnur í mannvísindum samtímans. Á hverju málþingi er stefnt saman fjórum nýdoktorum á sviði félags- og hugvísinda sem kynna rannsóknir sínar, ræða kenningarlegar undirstöður og tengingu við fræðilega strauma samtímans. Til þess að ná fram settum markmiðum eru fengnir fyrirlesarar úr ólíkum greinum hug- og félagsvísinda og við skipulag málþinganna er reynt að efla umræður og finna sameiginlega þræði fræðimannanna.
Lýðræði með raðvali og sjóðvali kemur út á spænsku
Bókaútgáfan Ediciones Gondo á Spáni hefur gert samning við Björn S. Stefánsson um að gefa út Democracia con elecciones de fila y elecciones de fondos, en svo nefnist Lýðræði með raðvali og sjóðvali á spænsku. Auk þess sem ritið verður prentað, verður það sett á netið...
Fyrirlestur um skapandi dans 15. október
Íslenska dansfræðafélagið í samvinnu við ReykjavíkurAkademíuna boðar til opins fyrirlestrar um skapandi dans. Fyrirlesari er Guðbjörg Arnardóttir, danskennari og skólastjóri Listdansskóla Hafnafjarðar. Fyrirlesturinn verður haldinn fimmtudaginn 15. október 2009 frá...
Gagnrýnin hugsun: ímyndir og fordómar
Viltu öðlast leikni í að greina ímyndir og fordóma og skerpa gagnrýna hugsun? Vinna að betra samfélagi? Opni háskólinn í háskólanum í Reykjavík í samstarfi við Reykjavíkurakademíuna býður upp á nýtt og spennandi 9 klst. námskeið í gagnrýnni hugsun, ímyndum og...
HAGNÝTAR TEIKNINGAR: Nothæf fegurð
Á föstudaginn kl. 17:00 opnar í Hoffmannsgalleríi sýning á teikningum unnum með nytsemi að leiðarljósi. Teikningin er allt í kringum okkur í endalausum myndum og tilbrigðum. Fyrir utan hina listrænu notkun gegnir hún margskonar hlutverkum öðrum, svo sem undirbúnings-...
Stúdentastofa ReykjavíkurAkademíunnar
Í haust mun ReykjavíkurAkademían bjóða háskólanemum í framhaldsnámi (meistara- eða doktorsnámi) í félags- og hugvísindum tímabundna vinnuaðstöðu í svonefndri Stúdentastofu í húsakynnum Akademíunnar að Hringbraut 121 í Reykjavík (sjá www.akademia.is). Nemendum gefst...
Fræðimenn í flæðarmáli
Fræðimenn í flæðarmáli: Saga ReykjavíkurAkademíunnar, eftir dr. Árna Daníel Júlíusson er nú á tilboðsverði á skrifstofu ReykjavíkurAkademíunnar. Bókin kostar 4.000 krónur og hægt er nálgast hana á skrifstofu ReykjavíkurAkademíunnar eða panta hana með tölvupósti á...
Doktorsvörn akademónsins Eiríks Bergmanns
Mánudaginn 22. júní s.l. varði Eiríkur Bergmann doktorsritgerð sína ,,Hið huglæga sjálfstæði þjóðarinnar'' - Áhrif þjóðernishugmynda á Evrópustefnu íslenskra stjórnvald. Andmælendur voru dr. Rasmus Gjedssö Bertelsen, gegnir rannsóknarstöðu við Harvard Kennedy School...
Samstarf um tengingu vísindastarfs og rannsókna við atvinnulífið
Opni háskólinn í Háskólanum í Reykjavík hefur gert samstarfssamning við Matís og ReykjavíkurAkademíuna um þróun námskeiða og námslína auk kennslu til að efla menntun í íslensku atvinnulífi. Framsækin þjálfun og menntun stjórnenda, sérfræðinga og starfsfólks fyrirtækja...
Uppúr hjólförum útrásar og kreppu!!! 28. maí
Víða um samfélagið fer fram umræða og endurmat af ýmsu tagi, um orsakir kreppunnar og leiðir út úr henni. Prisma er er eitt af merkustu lóðunum á nýjar vogarskálar, en hvað er það? Annar alþýðufyrirlestur ReykjavíkurAkademíunnar verður haldinn í sal RA, Hringbraut...
Hvað eru íslensk fræði? 20. maí
Félag íslenskra fræða kallar áhugamenn um íslensk fræði til málfundar klukkan 18 miðvikudaginn 20. maí í ReykjavíkurAkademíunni (JL húsinu). Málþingið er haldið í samvinnu við Sagnfræðingafélag Íslands, Félag þjóðfræðinga á Íslandi, Íslenska málfræðifélagið,...