Fréttir

Umsögn um frumvarp til stjórnarskipunarlaga

8. apríl síðastliðinn gerði ReykjavíkurAkademían athugasemd við heilsíðuauglýsingu þingmanna Sjálfstæðisflokksins þar sem vitnað er í allmargar umsagnir fræðimanna og sérfræðinga um frumvarp um breytingar á stjórnarskrá. Í auglýsingunni eru meðal annars tilgreindar...

read more

Morgunkaffi um menningarstjórnun 11. apríl

Meistaranám í menningarstjórnun við Háskólann á Bifröst og ReykjavíkurAkademían bjóða í annað sinn í Morgunkaffi um menningarstjórnun 11. apríl laugardaginn klukkan 10 - 12 í húsakynnum ReykjavíkurAkademíunnar. Norræna menningarmódelið: Er það til? Er menningarstefna...

read more

Gammablossar 8. apríl

Salvör Nordal er gestur Gammablossa þann 8. apríl og flytur fyrirlesturinn „Samfélagsleg ábyrgð viðskiptalífsins. - Hugleiðing um bankahrun og Milton Friedman." Fyrirlesturinn hefst klukkan 12.05 og stendur yfir í tæpan klukkutíma. Í fyrirlestrinum verður fjallað um...

read more

Málstofa með Merle Marks 5. apríl

Sunnudaginn 5.apríl verður málstofa í sal ReykjavíkurAkademíu kl 10 - 18 þar sem fjallað verður um samfélag og fjármál í öðru ljósi. Merle Marks heldur stutt erindi um eftirtalin viðfangsefni og þau verða síðan rædd í vinnuhópum. · Þróun atvinnulífs og fjármála -...

read more

Mímisþing 28. mars

Mímisþing - málþing íslenskunema - verður haldið í samstarfi við ReykjavíkurAkademíuna laugardaginn 28. mars 2009 í fundarsal hennar á 4. hæð í JL-húsinu við Hringbraut. Skipulögð dagskrá stendur frá 12:00 til 17:30 með tveimur hléum þar sem boðið verður upp á léttar...

read more

Ástverk ehf 19. mars

Léttur samtíðargamanleikur um þrjá íslenska fúskara [...] Snyrtilega fram sett [...] Manni leiðist yfirleitt ekki neitt þær 75 mínútur sem sýningin tekur. Jón Viðar Jónsson. Iðnaðarmannaleikhúsið sýnir verkið Ástverk ehf í ReykjavíkurAkademíunni 19. mars klukkan...

read more

Sjálfsmyndir Íslendinga á 20. öld

Miðvikudaginn 18. mars, frá klukkan kl. 20:00-22:00, flytja Marion Lerner, Júlíana Gottskálksdóttir og Hallfríður Þórarinsdóttir fyrirlestra um Sjálfsmyndir Íslendinga á 20. öld. Fyrirlestrarnir eru hluti af fyrirlestraröð Ínor verkefnisins. Guðmundur Hálfdanarson fer...

read more

Fræðslufundur um skattaskil 17. mars

Hagþenkir og ReykjavíkurAkademían bjóða félögum sínum til fræðslufundar á sal Reykjavíkur Akademíunnar, Hringbraut 121, 4 hæð þriðjudaginn 17. mars kl 17:00.Efni fundarins er Sjálfstætt starfandi fræðimenn: Uppgjör tekjuskattstofns, tekjur og frádráttur frá...

read more

Siðareglur – til hvers? 10. mars

Stjórn Mannfræðifélags Íslands vekur athygli á næsta fyrirlestri félagsins í fyrirlestraröðinni VETTVANGUR, NÁLGUN, SIÐFERÐI verður á þriðjudaginn kemur, 10. mars kl. 20:00 í húsnæði ReykjavíkurAkademíunnar, Hringbraut 121, 4. hæð. Þá mun dr. Jónína Einarsdóttir tala...

read more

Gammablossar 4. mars

Miðvikudaginn 4. mars flytur Dr. Ingólfur Ásgeir Jóhannesson fyrirlesturinn „Ísland er ekki líkt tunglinu: Hugleiðingar um þjálfun tunglfara á Íslandi.“ Í fyrirlestrinum verður sagt stuttlega frá tveimur ferðalögum bandarískrageimfara og geimfaraefna, sumra þeirra...

read more

Svæðisbundnar ímyndir 25. febrúar

Miðvikudaginn 25. febrúar kl. 20.00 - 22.00 halda Guðrún Þóra Gunnarsdóttir og Guðrún Helgadóttir, frá Háskólanum á Hólum, fyrirlestur undir heitinu Svæðisbundnar ímyndir. Athugasemdir og viðbrögð eru í höndum Valdimars Hafsteins  og fundarstjóri er Ólöf Gerður...

read more