![Loading Events](https://www.akademia.is/wp-content/plugins/the-events-calendar/src/resources/images/tribe-loading.gif)
- This event has passed.
Dagsbrúnarfyrirlestur 2022: Staða innflytjenda á Íslandi
17. February 2022 kl. 12:00 - 13:00
![Kristín Heba Gísladóttir framkvæmdastjóri Vörðu](https://www.akademia.is/wp-content/uploads/Kristin-Hega-Gisladottir.webp)
Bein útsending er neðar á þessari síðu!
Í Dagsbrúnarfyrirlestri ársins 2022 mun Kristín Heba Gísladóttir framkvæmdastjóri Vörðu – rannsóknastofnunar vinnumarkaðarins fjalla um stöðu innflytjenda sem eru félagar í aðildarfélögum ASÍ og BSRB á Íslandi út frá fjárhagsstöðu, stöðu á húsnæðismarkaði og heilsu á grunni könnunar Vörðu á stöðu launafólks meðal félaga í aðildarfélögum ASÍ og BSRB sem nýlega var birt.
Dagsbrúnarfyrirlesturinn er haldinn í samvinnu Bókasafns Dagsbrúnar, Eflingar og ReykjavíkurAkademíunnar frá árinu 2003 og hefur verið árlegur viðburður ef undan eru skilin árin 2020 og 2021 en þá féllu fyrirlestrarnir niður vegna heimsfaraldurs Covid-19.
Allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir og farið verður í einu og öllu eftir gildandi sóttvarnareglum.
Tengill á niðurstöðu könnunarinnar:
Maya Staub og Kristín Heba Gísladóttir. Staða launafólks á Íslandi. Niðurstöður spurningakönnunar meðal félaga í aðildarfélögum ASÍ og BSRB. Reykjavík, Varða – Rannsóknastofnun vinnumarkaðarins, janúar 2022.