(354) 562 8565 ra@akademia.is

Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

(Fyrir félaga FRA) Wikipedia og önnur Wikimedia verkefni – Hvaða gagn hef ég af því?

27. febrúar 2020 kl. 12:00 - 13:00

Wikiipedian

Fyrirlestur fyrir félaga FRA


Í fyrirlestrinum mun Salvör Gissurardóttir útskýra það samfélag og þann þekkingarbrunn og verkfæri sem hafa  orðið í kringum Wikipedia og á hvaða þróun það er.  Hún mun fara í skrif í wikipedia og wikibooks og hvernig gagnabankinn Commons (myndir og fleira) nýtist bæði í skrifum í wikipediaverkefnum en líka öðrum fræðilegum skrifum. Þá mun hún fjalla um outreach verkefni Wikipedia samfélagsins og hvað myndi gagnast íslenskum fræðimönnum og þekkingarleitendum best.

Salvör Gissurardóttir er lektor í upplýsingatækni við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Hún er upprunalega viðskiptafræðingur en heillaðist af kennslu og tæknibreytingum og gerðist framhaldsskólakennari og síðar námsstjóri í Menntamálaráðuneytinu á þeim tíma sem tölvur voru að kom inn í skóla á Íslandi. Hún fór síðan til  University of Iowa til náms í kennslutækni og námsgagnagerð (Instructional Design) og hefur að námi loknu verið starfandi háskólakennari að undanskyldum nokkrum árum þar sem hún starfaði í Forsætisráðuneytinu sem sérfræðingur í þróunarverkefni um íslenska upplýsingasamfélagið.

Salvör hefur tekið þátt í að stofna til og móta ýmis þróunarverkefni sem tengjast upplýsinga- og þekkingarsamfélagi nýrra tíma sem og verið aktívisti í ýmis konar mannréttindahreyfingum, þar af mörgum sem snúast um rétt almennings til aðgengis að menntun og upplýsingum og stafrænu efni og rétt til friðhelgis og frelsis.  Hún hefur tekið þátt í ýmis konar stafrænum samfélögum m.a. með bloggpistlum og hefur verið mjög virk í hópi þeirra sem skrifa á íslensku wikipedia (wikipedians) og í alþjóðasamfélagi um opinn aðgang og opið menntaefni. Salvör hefur nokkrum sinnum sótt alþjóðlegar málstofur og árlegar ráðstefnum Wikipedia samfélagsins

Við vonumst til að sjá sem flesta félagsmenn hlýða á þetta gagnlega erindi Salvarar

Stjórn félags ReykjavíkurAkademíunnar

Details

Date:
27. febrúar 2020
Time:
12:00 - 13:00
Event Category:
Website:
www.akademia.is

Organizer

Félag ReykjavíkurAkademíunnar
Email
ra@akademia.is
View Organizer Website

Venue

Fundarsalur ReykjavíkurAkademíunnar
Þórunnartún 2
Reykjavík, 105 Iceland
+ Google Map
View Venue Website