(354) 562 8565 ra@akademia.is

Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Í öndvegi: Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur, Lestur af pappír og skjá.

17. janúar 2019 kl. 12:05 - 13:00

Haukur Arnþórsson. Um Alþingi. Hver kennir kennaranum?
Í dag, fimmtudaginn 17. janúar kl. 12.05, flytur Dr. Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur fyrirlesturinn Lestur af pappír og skjá, í fundarsal ReykjavíkurAkademíunnar, Þórunnartúni 2, 4 hæð.

Í fyrirlestrinum fer Haukur yfir nýjar rannsóknarniðurstöður um samanburð lesmiðla og áhrif snjalltækja á lestur og einbeitingu og er m.a. minnst á niðurstöður rannsókna bandarísku prófessoranna Naomi Baron frá 2015 og

nýjar rannsóknir Maryanne Wolf sem vakið hafa mikla athygli. Þá verður kynnt niðurstaða rannsóknar um stöðu þessara lesmiðla hér á landi, sem framkvæmd var af Félagsvísindastofnun HÍ og Haukur vann úr og birti grein um í vorhefti Skírnis 2018. Rannsóknin var framlag Íslands til evrópska verkefnisins e-read og styrkt af Innanríkisráðuneytinu og Menntamálaráðuneytinu. Niðurstöður hennar sýna hversu mikið er lesið af hvorum miðli af ólíku lesefni og tengja lestur aldri, kyni og fleiri lýðfræðilegum breytum og gefa skemmtilega innsýn í yfirstandandi þróun.

Haukur Arnþórsson er sjálfstætt starfandi fræðimaður við ReykjavíkurAkademíuna. Hann átti áður aldarfjórðungs feril í upplýsingatæknigeiranum og rannsakar ekki síst samfélagsleg áhrif upplýsingatækni. Hann hefur verið virkur í rannsóknarstarfsemi á vegum ESB og sat í haust sem leið viðamikla ráðstefnu á vegum e-read verkefnisins, sem einmitt fjallaði um lestur og snjalltæki.

Fyrirlesturinn fer fram i fundarsal ReykjavíkurAkademíunnar, Þórunnartúni 2, 4 hæð og eru allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Verið velkomin!

Details

Date:
17. janúar 2019
Time:
12:05 - 13:00