Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Í Öndvegi: Stefán Jökulsson, Andlegt líf – jafnvægi og lífsfylling

29. February kl. 12:00 - 13:00

Stefán Jökulsson

Í Öndvegi fjallar Stefán Jökulsson um helstu þætti meistaraverkefnis síns við Háskólann á Akureyri sem hann lauk við í febrúar 2023. Mun hann útskýra hvað felist í heiti þess, Andlegt líf – skilgreiningar og álitamál, og hvernig hann hafi komist að þeirri niðurstöðu 1) að líta megi á andlegt líf sem þá deiglu þar sem hver og einn finni jafnvægi sitt, og 2) að lífsfylling tengist essinu okkar, því fólki eða fyrirbærum sem eigi sér hljómgrunn í okkur sjálfum

Stefán rökstyður hvers vegna hann telji það vandkvæðum bundið að lýsa andlegu lífi sem sjálfstæðu fyrirbæri. Einnig varpar hann fram þeirri spurningu hvort mikilvægi andlegs lífs og trúar kunni að vera ofmetið hjá þeim sem tengjast þessu tvennu á einhvern máta.

Details

Date:
29. February
Time:
12:00 - 13:00